Sumir gera heiminn sérstakan bara með því að vera í honum!! ;*
09.12.2006 22:36:10 / arnheiður

Ehe..:$

Jæja... ég held að ég sé farin að blogga aftur á bloggar.is síðunni minni :$ Var orðin svo pirruð á því að geta ekki sett inn myndir auðveldlega á þessa :evil: Þannig að það er komið nýtt blogg og nýjar myndir á www.arnheidur.bloggar.is :P

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 13:57:06 / arnheiður

Mig langar... ;)

Já, mikið rétt.. mig langar svo margt!! Og langar ekki svo margt.. :P Langaði bara að deila því með ykkur ;)

Mig langar ekki að vera í skólanum lengur.. reyndar er bara einn tími eftir í dag.. elska miðvikudaga, þá er ég búin í skólanum kl. 12:10 :D BEEEST ;)
Talandi um skólann, þá langar mig ekki í skólann á morgun. Hata fimmtudaga að því að þá er ég í skólanum frá 8:15 til 16:05 8| Reyndar með matarhléi..en það er ekki nema klukkutími eða eitthvað.
Mig langar að fara að versla. Langar að fara að versla í RVK. Er orðin svo geðveikt leið á þessum búðum hérna! Ætla samt að reyna að finna mér eitthvað ég eftir fyrir árshátíðina, skó og eitthvað þannig vesen. Ég get alveg viðurkennt að það er hægt að kaupa flotta skó hérna, en það er stundum geðveikt erfitt að finna föt hérna!!
Stelpukvöld...langar að hafa stelpukvöld. Er ekki pottþétt að það verði um helgina stelpur?:D
Langar heim undir teppi (þá bara heim á herbergi) og hafa það kósý, vera með heitt kakó og, og, og.. jáá...horfa bara á mynd eða eitthvað.. notalegt :D
Mig langar geggjað mikið í heimsreisu. Koma við í Thailandi bara og hitta Grétu.. sakna þín :cry: ;*´
Mig langar í eitthvað að borða.. ég er geggjað svöng eitthvað :|

Ætli ég bæti ekki bara við listann einhvern tíman seinna. Ég er alltaf að hugsa um eitthvað sem mig langar að gera eða ekki gera, skelli því kannski inn seinna ;)

Jáh.. ég er búin að vera að gera ýmislegt síðustu daga. Fór náttla heim um helgina. Skellti mér á árshátíðina á Húnavöllum. Geggjað flott hjá þeim. Er ekkert smá stolt af þeim :D
Á laugardaginn fór ég í Leifsstaði að reka hrossin okkar og eitthvað svoleiðis vesen. Skellti mér svo til Hössa um kvöldið. Vorum bara eitthvað fíblast.. fórum t.d. í fótbolta á ganginum hjá honum ;) Langt síðan að ég hef gert það.. sko spilað fótbolta svona inni í húsinu hjá einhverjum :P Hehe.. fórum svo aðeins á rúntinn.. svakalegur rúntur alveg.. keyrðum 'alveg' upp að Húnavöllum og til baka ;)
Á sunnudaginn vorum við bara eitthvað að chilla. Ég var að reyna að læra eitthvað fyrir frönskuprófið sem var á mánudaginn.. lítill áhugi fyrir því og ég var orðin vel stressuð seinnipartinn þegar ég uppgötvaði að ég kynni eiginlega ekki neitt 8| En það er svona venjulegur prófkvíði hjá mér :| Það reddaðist samt allt. Við brummuðum svo bara heim til mín seinnipartinn og fengum svo far með Pálma norður. Fórum þá bara strax á Subway og svo fór ég að reyna að læra eitthvað meira.. ætla samt ekkert að taka það fram hversu lengi... :$
Á mánudaginn var bara skóli.. prófið.. og það gekk bara rosa vel sko :D Fékk út úr því í gær og fékk 8.92 þannig að ég er ábægð sko :D Þurfti svo að fara að læra fyrir annað próf eftir skóla. En það var skriflegt dönskupróf... hmm...afhverju kom það mér ekki á óvart??:evil: Við erum alltaf í skriflegum prófum held ég!! Ég hata þau! Ég hata dönsku! Ég fór svo í þetta próf í gær og það gekk bara ágætlega sko.. held ég.. :) Ætla rétt að vona að þetta hafi verið síðasti prófið í þessari viku.. og bara næstu vikurnar! Nenni ekki þessu prófaveseni lengur! Afhverju er ekki bara haft lokapróf?? Kannski bara svona verkefni inn á milli.. allavega ekki svona próf og kannanir. Ég verð alltaf svo stressuð fyrir svona prófum:| Hmm..afhverju finnst mér eins og ég sé búin að tuða um þessi próf áður? ;)
Ég er komin heim núna úr skólanum, þannig að ég tók mér smá pásu á blogginu áðan. Nenni ekki að læra.. er eiginlega að hugsa um að fara að drulla mér í bæinn og klára að kaupa árshátíðar 'átfittið' ;) Árshátíðin er semsagt á föstudaginn fyrir þá sem ekki vita :P Hlakka rosa til sko. Allt eitthvað svo flott þarna :D Allir í fínufötunum. Ég eeelska að vera í fínufötunum :D Svo verða örugglega myndatökur og eitthvað þannig. Stelpur eruði ekki til í myndatöku við allar saman? Ef þær verða, hef ekkert heyrt um þær :| Kemur í ljós ;)

Oohh..ég hata hvað bloggin verða alltaf löng hjá mér 8| Alltaf að tala um einhverja alveg tilgangslausa hluti sem væri hægt að stytta niður í eina setningu!!:| Ég er allavega hætt núna.. ;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 10:29:15 / arnheiður

Test :) Og líka blogg ;)

Ég nenni eiginlega ekki að blogga svo að.. endilega gerið test ;) Stal þessu hjá Nínu :P Takk Nína ;) .. ég bæti kannski bloggi bara við seinna.. kannski í dag.. veit ekkert um það :P ... [22.nóv. ákvað að blogga fyrir neðan]

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik/ur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Hæhæ.. ég ákvaðað blogga bara. Er í íslensku og ég einhvern veginn fæ mig ekki til að hlusta... Kannski ekki gott mál, en jæja.. ég þarf að fara að blogga ;)

Það er svo sem ekki mikið að frétta af mér. Ég hef ekki verið að gera neitt miiikið uppá síðkastið. Fór á Borat í síðustu viku. Alveg ááágæt mynd þótt að ég get alveg sagt að ég hefði alveg getað beðið eftir að hún kæmi út á dvd eða eitthvað, þótt að ég myndi ekki kaupa mér hana. Þetta er ekki allt svona húmor sem ég fýla þótt að ég hafi alveg hlegið af þessu sko!! :)

Ég skellti mér svo heim um helgina og váá.. mér leiddist svo, fann mér ekkert að gera8| Var semsagt aðallega að læra, eða horfa á sjónvarpið alla helgina. Fór einu sinni út, annars eiginlega ekki neitt. Kom hingað á Akureyri um 6 leytið á sunnudaginn. Gerði frekar lítið sérstakt fram á kvöld. Fékk mér að borða og var svo eitthvað að flippa með Hössa og strákunum. Fórum niður til Helgu og Jennýjar og vorum í einhverju brálæðisstuði þar.. rosa gaman sko ;)

Þessa dagana er ekkert að gerast. Mér finnst endalaust eitthvað af prófum og veseni. Ég þoli ekki próf. Ég verð stressuð fyrir próf og það er ekki gott fyrir sálina mína ;) Við erum að fara í þýskupróf á morgun.. er farin að verða stressuð, en það er reyndar aðallega að því að ég á ekki eftir að hafa svo mikinn tíma í dag til þess að læra, eða mér finnst það ekki mikill tími. Ég vil yfirleitt hafa mikinn tíma til að læra fyrir próf.. en samt byrja ég bara að læra fyrir þau daginn áður. Nóg um það..

Ég er að fara í klippingu og litun í dag... hlakka geggjað til :D Samt er ég pínu kvíðin.. þúst ef þetta verður geggjað ljótt eða eitthvað:$ Thíhi.. samt er ég bara að fara að lita það svona mjög svipað og það var..sakna gamla litarins svo. Sá einhverja mynd af mér um daginn þar sem ég var með bara brúna hárið mitt og ég hugsaði bara: ,,vá hvað mig langar að fá þennan lit aftur!" Reyndar ætla ég örugglega að hafa það svona pínu öðruvísi... kemur í ljós ;)

Svo er það bara heim um helgina.. skella sér á árshátíðina hjá dúllunum í Húnavallaskóla :D Hlakka geggjað til, er búin að heyra að þetta sé geggjað flott svo að ég get valla beðið :P Svo ætla ég að reyna að finna mér eitthvað meira að gera en úm síðustu helgi! :)

Jæja.. þetta er komið gott í bili :)

ps. Bloggaði á www.blog.central.is/heimalingarnir :o ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 21:41:44 / arnheiður

Biturleikinn nokkurn veginn farinn :)

Jájá, ég get alveg eins bara farið að blogga frekar en að vera í einhverjum tölvuleikjum.. Er bara inni á herbergi hjá Höskuldi og hann er bara eitthvað að spila á gítarinn og Þorsteinn í tölvunni svo að það er nákvæmlega ekki neitt að gerast hérna!

Ég er semsagt á Akureyri, ákvað að vera hérna til að læra öll þess ósköp sem við fengum í heimalærdóm um helgina!8| Mér finnst það sennilega samt bara mikið að því að ég var bara að byrja að lesa einhverja bók sem við erum að fara í próf úr á þriðjudaginn og við þurfum helst að vera búin með hana fyrir mánudaginn:$ Þetta er ógeðslega leiðinleg bók maður.. ég var eitthvað að reyna að lesa hana í dag og ég sofnaði allavega tvisvar, ég var búin að reyna allt til að halda mér vakandi.. reyndi meira að segja að vera svona pínu upprétt einu sinni en ég sofnaði samt:| Svo var ég alltaf að loka augunum og eitthvað. Ég er bara rétt komin á bls. 40 og eitthvað.. og bókin er 160 og eitthvað bls:| Ég vona samt að ég nái að lesa hana eitthvað á morgun. Mig langar samt geggjað að fara og horfa á Hössa og hina krakkana sem komu hingað að keppa.. Sé til ;)

Annars er frekar langt síðan að ég bloggaði. Biturleikinn yfir 'síðasta' bloggi sem ég var að gera er svona nokkurn veginn farinn. Ég var samt svo reið að ég var næstum búin að skipta aftur yfir í bloggar.is síðuna mína að því að þar er hægt að stilla þetta þannig að maður dettur ekki útaf og allt HEILA bloggið sem maður var búinn að skrifa fer:evil: Vá, ég var búin að skrifa geggjað langt blogg um vetrarfríið mitt og smá herbergissögu.. og þetta þurfti náttla allt að fara :( Ég kannski segi samt eitthvað frá vetrarfríinu mínu núna.. þannig að ég bíst við að þetta blogg verði geðveikt blogg.. ef ég gleymi þá ekki að copy-a :$

En vetrarfríið.. það byrjaði á fimmtudaginn í síðustu viku, en ég ákvað að vera bara hérna á Akureyri þangað til á föstudeginum að því að mamma&pabbi&brósarnir komu hingað þá. Þannig að á föstudeginum var ég bara eitthvað að hanga með Hössa hérna. Fórum einhvern tíman í Brynju og svo vorum við bara að hanga í tölvunni og eitthvað þannig.
Á föstudeginum svaf ég svo fram að hádegi eða eitthvað. Fór þá bara að taka saman dótið mitt og fór svo að fá mér að borða. Hitti síðan familíuna og hékk bara með þeim hérna á Akureyri þangað til að við fórum heim :)

Á laugardaginn var ég bara eitthvað að hanga þangað til um hálf 5 leytið. Þá fór ég upp í Húnaver til að gera allt tilbúið þarna fyrir kvöldið. Það var nebla svona Lokahóf UMFB þar. Ég, Hulda, Rúnar og Bjarni vorum á fullu í að gera salinn rosa flottann sko. Reyndar voru mamma og Bergrún líka í því ;) Ég þurfti svo reyndar að fara um hálf 7 að ná í Hössa heim til hans að því að hann ætlaði líka að koma á þetta...eini Geislinn þarna ;) En það var rosa stuð þarna. Fyrst var alveg snilldar matur, svo fórum við að spila bingó sem við Rúnar vorum að stjórna og svo voru svona alls konar leikir og eitthvað. Ég var látin fara í einhvern leik þar sem maður átti að annað hvort að smakka eitthvað eða finna lykt af einhverju með bundið fyrir augun og finna út hvað það væri.. og þótt ótrúlegt sé þá vann ég :P Ég var látin smakka þúst smjörlíki og eitthvað ógeð.. kavíar og eitthvað.. oojj :| En svo var líka kosið svona íþróttastrákur og stelpa ársins. Oog... *roðn* Ég og Rúnar vorum valin... *roðn* En svo var þetta bara fljótlega búið og við fórum eitthvað að taka smá til þangað til að við fórum heim :)

Sunnudagurinn var bara letidagur. Við Hössi lágum mest allan daginn uppi í rúmi í tölvunni eða fyrir framan sjónvarpið. Hann fór svo einhvern tíman um 6 leytið og ég var frekar lítið að gera þangað til að ég fór að sofa sem var um 10 leytið og svaf svo til 10 daginn eftir... geggjað þægilegt að sofa svona lengi :) Semsagt fara snemmað sofa líka... ekki eitthvað geggjað seint því að það er einhvern veginn öðruvísi þótt að maður sofi alveg í 12 klukkutíma eða eitthvað þannig :)

Á mánudaginn kom ég svo bara hingað á Akureyri einhvern tíman og fór að læra eða eitthvað...man það ekki:P Þessa vikuna er ég svo ekki búin að vera að gera neitt sérstakt svosem. Ég, Jófríður, Anna og Karen fórum niður í bæ á miðvikudaginn (minnir mig). Þær keyptu sér allar eitthvað.. en ég fann mér ekki neitt.. eða reyndar tímdi ég því ekki :$ Ég fór svo reyndar í dag og keypti mér vestið sem ég er ekki búin að tíma að kaupa mér í mánuð eða eitthvað álíka :P Svo á fimmtudaginn fórum við, Hössi, Jófríður og Anna upp í VMA á Morfís- kvöldvökuna. Við fórum svo reyndar heim í hléinu.. þetta var samt ekkert svo leiðinlegt sko.. bara nenntum ekki að vera þarna lengur :P Í gær fórum við Hössi svo að versla. Fórum fyrst niður á göngugötu, svo í Hagkaup og svo á Glerártorgið. Ég fann aldrei það sem mig vantaði.. reyndar fann ég geggjað flotta skó til að vera í á árshátíðinni, en ég ákvað að kaupa mér þá ekki alveg strax heldur að tjekka hvort að þeir passi ekki örugglega við kjólinn ;) Svo þegar við komum heim fór ég bara að læra og læra eiginlega mest allt kvöldið. Við reyndar pöntuðum pítsu og borðuðum hana náttla, svo fórum við aðeins niður til Einars og svo héngum við bara hérna uppi á herbergi í tölvunni.. hann í einhverjum fótboltaleik í sinni tölvu og ég í minni tölvu bara eitthvað netinu.. semsagt rosalegt stuð eitthvað :$ ;) Ég var síðan bara að læra í dag og fór náttla þarna aðeins niður í bæ. Var eiginlega ein heima í herberginu hans Hössa í dag að því að hann fór að keppa og ég nennti ekki upp í mitt hérbergi :P

En jæja..ætli þetta sé ekki orðið nógu langt hjá mér.. ég allavega nenni ekki að skrifa meira! Bæbæb :)


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 21:02:06 / arnheiður

Urr...*reið*

NNNNEEEEEIIIIII!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Ég var búin að blogga alveg geggjað langt blogg...svo gleymi ég að copy-a og allt þurrkast út!!:evil: Ég er geðveikt bitur núna og ég ætla sko ekkert að blogga bara næstu dagana :evil:

BLESS!


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 21:22:33 / arnheiður

Fatabúðir !!

Jájá, afhverju ekki að blogga bara? Ég hef ekkert að gera. Það er komið vetrarfrí í skólanum og ég nenni bara alls ekki að læra eða neitt í sambandi við skólann, þótt að það væri náttla fræabært að vera búinn að því..en svona er letin ;) Ég ákvað að vera aðeins lengur á Akureyri, eða þangað til á morgun, að því að mamma og pabbi eru að koma þá :P Þannig að núna er ég bara að hanga inni á herbergi hjá Hössa og við erum í sitthvorri tölvunni eða leika okkur ;) Já, eða hann er í einhverjum tölvuleik og ég er að blogga...sem er auðvitað mjög mikilvægt ;) Hehe...ábyggilega álíka mikilvægt og að vera í einhverjum tölvuleik :P

Skólinn var búinn aðeins fyrr í dag, sem betur fer! Ég hata fimmtudaga. Þeir eru svo langi og geggjað leiðinlegir eitthvað plús það náttla að það eru tveir náttúrufr.tímar og náttúrufræði er bara eitthvað sem mér á aldrei eftir að finnast skemmtileg...allavega ekki efnafræð! En við semsagt fengum frí í báðum náttúrufr.tímunum, sem er auðvitað bara snilld :D Ég fór samt auðvitað ekki að nýta tímann til að læra...reyndar kláruðum við Arndís eitthvað enskuverkefni sem við áttum að gera og skila í dag :) Annars er ég bara búin að vera að hanga eitthvað í tölvunni og svo fór ég aðeins niður í bæ að 'versla' áðan. Ætlaði að reyna að finna mér buxur og peysu, en neinei, það er ekki hægt að finna neitt þannig sem manni langar í. Er alveg með akkurat hugmyndina um peysu sem mig langar í, en hún er auðvitað ekki til, svo er ég að leyta mér að gallabuxum..eða bara einhvern veginn buxum, en það eru bara einhvern veginn engar buxur hérna sem mig langar í! Eða þá að þær kosta langt yfir 10.000 kr. og ég er nú ekki alveg svo buxnaþurfi! Ég ætla samt að fara aftur á morgun og kíkja aftur... Mig langar til RVK að versla!:(

Ég er hætt þessu væli ;)

Vikan er búin að vera alveg ágæt. Ég fór í bíó með Höskuldi í gær. Fórum á The Guardian. Geggjað góð mynd bara :D En ekkert smá sorgleg...ég var bara að berjast við tárin8| Og maður heyrði líka alveg að fólk táraðist þarna fyrir aftan mann, allir að sjúga upp í nefið og svona ;) Rosa krúttlegt ;)

Jæja, ætli maður fari ekki að hætta í bili :P Verið bara dugleg að commenta :D


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 22:09:41 / arnheiður

Ég að blogga!?:O

Já, ótrúlegt er það víst... ég hef ekki bloggað síðan ég veit ekki hvenær.. jú náttla þarna á amælinu mínu, en ég myndi ekki telja það sem blogg, bara einhver smá lína. En allavega.. ég átti auddað afmæli þarna um daginn...fékk bílpróf og alles 8) Reyndar þótt ótrúlegt sé þá er ég eiginlega ekkert búin að vera að keyra...er ekki komin á bíl hingað norður (það fer samt vonandi að koma að því!) og hef eiginlega aldrei neinn tíma um helgar. En allavega..afmælisdagurinn var bara fínnt :) Fór náttla bara í skólann og það vesen allt. Fór meira að segja, minnir mig, í píptest...svona til að toppa daginn :$ Það reyndar gekk ekkert það vel...en samt ekkert illa ;) Mér hefur alveg gengið betur :P En svo eftir skóla skellti ég mér bara heim og Hössi koma svo heim til mín rétt á eftir mér :) Vorum bara að chilla heima eitthvað :) Rosa stuð eitthvað :) Já, svo fékk ég 2 afmælisgjafir þennan dag :D Frá Hössa og Grétu...takk dúllurnar mínar, þið eruð yndi!! Svo um kvöldið ætlaði ég að vera geggjað svöl og keyra Hössa heim, en ég var orðin svo geggjað þreytt um kvöldið að ég lét bara pabba gera það :haha:

Vá þetta blogg gengur eitthvað slow hjá mér..

Allavega.. það var stelpukvöld í síðustu viku. Rosa stuð...mikið hlegið :P Það átti víst ekkert að heyra í okkur...en það heyrðist víst ansi langt í okkur...:$ ;) Ég meina þegar það koma einherjar 10 stelpur saman (er ekki með töluna á hreinu, og nenni ekki að telja upp ;)) þá er ekki hægt að biðja okkur um að hafa lágt.. ;) Svo eftir allan hláturinn var farið á rúntinn á tveimur bílum. Svo þegar stelpurnar í hinum bílnum báði okkur um að koma í hókípóki...þá létum við okkur hverfa ;) Reyndar minnir mig að við höfum týnt þeim (já við týndum þeim á rúntinum ;)) áður en þær báðu okkur um það :P

Já, svona var nú það ;) Vá, ég man ekkert hvað ég er búin að vera að gera síðustu daga.. reyndar er allt búið að vera á fullu í skólanum. Fullt af hópaverkefnum og svoleiðis. Svo er reyndar að koma vetrarfrí um næstu helgi. Ég trúi þvi samt ekki að önnin sé að verða hálfnuð 8| Mér finnst geggjað stutt síðan að ég var að koma hingað og raða dótinu mínu í herbergið og svona...samt er það langt síðan... æji byrja ég ;)

Ég fór á fótboltaæfngu í gær á Húnavöllum með strákunum og Sigurveigu ;) Rosa fjör :P Vorum alveg frá 20:00-23:00 ca ;) Ég meira að segja keyrði sjálf...og það var eiginlega svona fyrsti rúnturinn minn með bílpróf ;) Þannig að Ásgeir og Simmi eiga eiginlega heiðurinn af honum að því að þeir fengu far ;)

Jæja..ætli maður fari ekki að hætta þessu rugli:) Heyri í ykkur...verið endilega dugleg að kvitta...bara segja hæ eða eitthvað ;) og já, það er ný skoðanakönnun :P


» 5 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 11:12:43 / arnheiður

Thíhí :D

ú,ú,ú,ú... Hver fær bílpróf í dag??? :D :D :D

» 13 hafa sagt sína skoðun

14.10.2006 20:12:53 / arnheiður

Újee... ;D

Hæhæ :) Ákvað að blogga bara víst að ég nenni ekki að læra. Ég þarf samt svo að læra að því að ég á ekki eftir að hafa mikinn tíma á morgun:| Það er nebla afmælispartý hjá Hilmari brósa á morgun. Fullt af fólki að koma og ég á eftir að taka til í herberginu og baka einhverjar kökur 8| Ég veit ekki alveg hvernig ég á að hafa tíma fyrir þetta allt, þar sem að ég held að ég eigi líka eftir að þurfa að hjálpa pabba eitthvað úti. Jedúddamía...hvað er ég að gera með að blogga?? :o Reyndar ef ég blogga ekki núna þá blogga ég ekki fyrr en...ég veit ekki hvenær!! Það er nebla allt komið á fullt í skólann og við erum að fara í skálaferð á mánudaginn og komum heim úr henni á þrið. Ég er samt svo ekki að nenna, en ef ég fer ekki þá fæ ég skróp, sem er náttla ekki gott, þannig að maður verður að skella sér. Þetta var reyndar alveg ágætt í fyrra sko, en einhvern veginn er ég ekkert spennt fyrir þetta núna...:$ Ekki það að krakkarnir séu eitthvað slæmir sko :)

En nóg um það ;)

Það er búið að vera alveg slatti að gera í vikunni. Náttla bara skóli á mán. og þrið. Svo strax eftir skóla á þriðjudaginn þurfti ég að vera heim að því að ég var nabla að fara í bílprófið á miðvikudaginn og ég þurfti að fara og taka nokkra tíma hjá Selmu. Við fórum þrjú saman, ég, Hafdís og Hlynur. Mamma Hafdísar var svo góð að koma og ná í okkur :) Við fórum svo bara í ökutíma á Blönduósi í ekkert sérstöku veðri :| Veðrið var svona eiginlega bara til að auka stressið fyrir prófinu daginn eftir. Ég t.d. svaf eiginlega ekkert um nóttina og vildi svo ekki borða neitt á miðvikudagsmorguninn. En í prófið þurfti ég að fara og tók það bara með stæl ;) og þau hin líka :D Þannig að ég er svona eiginlega komin með bílpróf...þarf að bíða í nokkra daga eftir skírteininu að því að ég er ekki orðin 17. Hlakka svo geggjað til :D

En eftir prófið á mið. fórum við bara aftur á Akureyri með rútunni og maður fór auðvitað beint í það að læra þegar maður kom:^) Það var samt eitthvað takmarkað sem maður nennti að gera ;) Svo var ég bara eitthvað að chilla um kvöldið.

Á fimmtudaginn var ég náttla bara í skólanum (eins og venjulega;)). Eftir skóla var ég nú bara eitthvað að chilla þangað til að við Hössi, Símon og Hjalli fórum í bíó. Fórum á Jackass 2. Það var eitthvað svona heimavistartilboð eða eitthvað þannig. Þetta var alveg ágæt mynd...ég gat allavega hlegið dáldið mikið og eiginlega bara allir :P Samt komu svona nokkur atriði sem að ég gat bara alls ekki horft á!! Vá, hvað sumt var ógeðslegt þarna!!:o En eftir bíóið fórum við bara aftur upp á Vist og ég var bara eitthvað að chilla með Hössa. Fór reyndar aðeins út að skokka einhvern tíman...nokkuð hressandi..þarf endilega að fara að gera meira í því!!

Á föstudaginn vorum við búin frekar snemma í skólanum svo að við stelpurnar (ég, Arndís, Anna, Jófríður, Karen og Erla) fórum niður í göngugötu í smá verslunarleiðangur. Við vorum reyndar ekki að kaupa okkur mikið. Ég sá reyndar leðurjakka á 1000 kr. Var mikið að spá í að kaupa mér hann...sé eiginlega eftir að hafa ekki gert það:$ En ég þurfti eiginlega að drífa mig þannig að ég hætti bara að spá í það. Við fórum svo aðeins á Bláu könnuna og fengum okkur köku :P Ég nánast hljóp svo upp á Vist að því að ég þurfti að fara að fara heim. Ég kom svo hingað heim einhvern tíman um hálf 6 leytið og var eiginlega ekki að gera mikið það sem eftir var af deginum!! Heyrði reyndar aðeins í Hössa um kvöldið, en svo fór ég bara að sofa.

Í dag átti ég að fara að smala á Svartárdalsfjallinu, en þegar við komum yfir í Leifsstaði þá var svo geggjað mikið að rok að pabbi ákvað að fara bara einn að smala. Enda var ekki beint þörf fyrir okkur þar sem að hann kom ekki með neina kind niður :P við löbbuðum síðan bara aðeins upp í brekku til að ná í einhverjar kindur þar og vorum að sortera þær eitthvað þangað til við fórum heim. Ég er síðan bara búin að vera hér eitthvað að hanga og er svona eiginlega að hugsa um að fara að læra ;)

Heyri í ykkur seinna :P

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.10.2006 17:07:04 / arnheiður

Blogg í dag :]

Já, ég ákvað að vera bara dugleg og blogga í dag, þótt að ég hafi eitthvað verið að afsaka mig þarna í morgun :) Ég veit sosem ekki mikið hvað ég á að segja en mér bara leiðist eitthvað svo núna. Það er allt eitthvað svo...æji ég veit það ekki:| :P Ég held að ég sé bara þreytt :)

Það er náttla alveg geggjað langt síðan að ég bloggaði síðast en ég hef bara einhvern veginn ekki haft tíma í það eða einfaldlega bara ekki gefið mér tíma í það.
Það er allt á fullu í skólanum núna... kominn alveg slatti af heimalærdómi. Ég hata að læra heima. Afhverju í fjandanum er ekki bara hægt að láta mann gera þetta allt í skólanum sem maður á að læra og svo lærir maður bara fyrir próf?? Já, hver getur svarað því?? Ég, persónulega væri allavega alveg til í að breyta þessu. Þetta lítur stundum út eins og maður eigi ekki að eiga sér neitt líf. Stundum er svo mikið að læra að maður er í rauninni bara að því langt fram á kvöld, já, eiginlega bara þangað til að maður vill fara að sofa!! Hverjir eru sammála um að við breytum þessu? Ég meina, það er þá kannsi bara hægt að lengja skóladaginn aðeins...en bara aðeins!! Það er náttla líka til sú aðferð að læra bara aldrei heima, en maður náttla kemst ekkert alltaf upp með það, það eru allt viss verkefni sem maður ÞARF að skila annars bara...fær maður ekki að taka próf eða eitthvað þannig...

Annars er í rauninni ekki mikið að frétta af mér. Ég er búin að vera á fullu í ökutímum alla helgina. Er svo að fara í verklega prófið á miðvikudaginn :D Er orðin alveg ótrúlega spennt...en samt alveg þokkalega kvíðin...:$ Ég vona samt að þetta fari vel. Bið samt um stuðning á miðvikudaginn...fyrir hádegi (er ekki með komin með betri tímasetningu).
Svo fór ég aðeins í Helgavatn í afmæli til Elvar. Hann bara orðinn 1 árs krútt :P Þar var alveg slatti af fólki. Hitti Hauk aðeins, en hann kom ekkert heim fyrr en dáldið seinna en við komum þannig að ég sá hann ekki mikið :S

Vá hvað ég hef eitthvað frá litlu að segja.. Er eiginlega bara að bíða eftir því að komast á Akureyri. Ég nenni valla að læra, langar eiginlega bara að sofna og sofa bara þangað til að ég þarf að fara að taka mig til.
Ég ætla að fara að finna mér eitthvað að gera...læt þetta duga í bili, en ég ætla samt að reyna að vera duglegri við þetta blogg vesen!!
Heyri í ykkur :)

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.10.2006 09:38:11 / arnheiður

Enginn tími =/

Sorry að ég hef ekki bloggað í ár og aldir..ég er bara ekki búin að hafa neinn tíma til þess :S Ég hefði kannski haft tíma til þess í síðustu viku, en ég var bara ekki með hleðslutækið mitt á tölvunni fyrir norðan svo að ég vildi ekki vera alltaf að eyða útaf tölfunni minni :| En ég ætla að fara að blogga bráðlega..ég lofa ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 19:16:09 / arnheiður

Akureyrarblogg :)

Blogg? Já, hvað er það? Fyrir mér virðist það allavega vera eitthvað sem ég er alveg hætt að nenna að gera :$ Það kannski breytir engu að því að það nennir hvort eð er enginn að lesa þau...

Það er vika búin af skólanum, eða vika + einn dagur í síðustu viku (nenni ekki að telja hann með). Mér finnst samt ennþá ótrúlega skrítið að vera byrjuð í skólanum. Við erum í rauninni ekkert byrjuð alveg á fullu, finnst mér. Það er aðeins byrjaður að koma heimalærdómur en hann er ekkert svoo svakalegur. Eða á þetta bara að vera svona? Til er ég ;)
Þessi skólavika var einhvern veginn alveg ótrúlega fljót að líða, en samt er langt síðan að það var mánudagur ;) Jújú, tíminn er ennþá í einhverju rugli hjá mér:P Þetta fer vonandi að koma þegar maður fer að skipuleggja sig aðeins meira með skólanum. Ég ætla að vera duglegri við það þennan vetur en ég var síðast. Mér fannst alltaf allt vera eitthvað svo skipulagslaust (er það orð?) hjá mér síðasta vetur :$

Eeennn...ég er auðvitað ekki búin að vera bara í skólanum alla vikuna, er alveg búin að hafa eitthvað meira að gera ;)

Á mánudaginn eftir skóla fór ég með Höskuldi niður á Glerártorg. Ég þurfti að fara að versla mér eitthvað þar og fékk hann til að koma með mér ;) Hann þurfti reyndar að versla eitthvað líka þannig að við vorum eiginlega að versla saman ;) Skemmtilegt það :P Eftir að við komum upp á Vist dró ég hann með mér á bókamarkaðinn (hann vildi reyndar koma með;)) og við stóðum í dáldinn tíma í röðinni fyrir framan hraðbankann, reyndar stóð hann í henni seinni hlutann af röðinni því að ég mundi að ég þurfti að ná í eitthvað upp á Vist. Svo þegar ég var að koma aftur þá var hann að taka síðustu peningana út úr hraðbankanum oogg...það var þvílík röð á eftir honum!! Vá, hvað ég var að sumu leyti fegin að hafa þurft að ná í þetta dót upp á Vist, sem að ég þurfti svo ekkert að nota ;) En þetta hafðist allt saman :P Við fórum svo um kvöldið og leigðum okkur myndina When a stranger calls og ég var að horfa á hana með honum og Arndísi. Þeim náttla til mikillar skemmtunar þá uppgötvuðu þau að það væri voða fyndið að bregða mér svona nokkrum sinnum í myndinni:frown: Voða fyndið eitthvað :$ ;)

Á þriðjudaginn var busadagurinn þannig að það var enginn skóli hjá mér. En ég vaknaði nú samt til að sjá þessi busagrey í busasirkusinum ;) Einstaklega skemmtileg upplifun að sjá strákana í brjóstahaldara og sokkabuxum :lol: Og margir voru alveg einstaklega skemmtilega klæddir :P En ég nennti ekki að horfa á þetta allt saman, þau fóru bara í einhvern ratleik eða eitthvað eftir sirkusinn. Þannig að ég fór bara einhvern tíman niður í bæ, þurfti að kaupa mér eitthvað í Pennanum og svo var ég bara eitthvað á röltinu þarna í búðunum, keypti mér samt ekki neitt (nema í Pennanum). Um kvöldið var svo busaballið. Ég skellti mér auðvitað á það. Ég get samt alveg sagt að ég hef alveg skemmt mér betur á balli!! Þannig að ég entist ekki alveg allt ballið, fór rétt fyrir hálf 12 (það var búið hálf 1). Við Höskuldur fórum bara eitthvað inn á herbergi til mín og hreinlega bara sofnuðum :P

Á miðvikudaginn var frekar stuttur skóli. Erum búin í skólanum kl 12:10 á miðvikudögum, ekkert smá þægilegt :D Ég fór bara einhvern tíman niður í bæ með myndir í framköllun og fór svo aftur einhvern tíman seinna að ná í þær :P Fékk alveg ágætis myndir bara :) Um kvöldið skellti ég mér bara í bíó með alveg slatta af fólki. Fórum á Nacho Libre, alveg ágæt mynd þótt að ég hafi alveg séð betri myndir :)

Á fimmtudaginn var ég svo sem ekki að gera mikið. Var að þrífa inni á herbergi og svo bara eitthvað með Höskuldi. Man eiginlega ekkert hvað ég var að gera þennan dag :P

Ég fór svo bara heim í gær eftir skóla og var eiginlega ekki að gera neitt sérstakt eftir að ég kom heim. Hundleiddist eiginlega bara :| :) Búið að vera eiginlega bara frekar svipað í dag, er reyndar eitthvað búin að vera að læra og svo bakaði ég köku fyrir kaffið, en annars er mér búið að hundleiðast eiginlega. Er bara farin að bíða eftir því að komast á Akureyri aftur á morgun ;)

En ég er hætt þessu í bili.


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.09.2006 20:33:12 / arnheiður

Skólinn byrjaður

Kominn tími á blogg held ég :) Auk þess veit ég ekkert hvenær ég hef tíma næst til að blogga, eða net. Er nebla ekki komin með netið á Vistinni.

En annars... Ég skellti mér á Akureyri á miðvikudagsmorguninn. Spennan var náttla alveg í hámarki þarna hjá mér ;) Ég mætti á Akureyri um 11 leytið og byrjaði á því að fara aðeins í Hagkaup, reyndar ekki til að kaupa mér neitt þannig lagað, við vorum bara þar. Ég reyndar keypti mér einn bol :P Svo fór ég bara á Glerártorgið og við fengum okkur eitthvað að borða og svo var ég bara eitthvað að versla í Rúmfatalagernum svoleiðis dót ;) Keypti náttla alveg slatta þar sem að ég nenni ekki að telja upp....enda skiptir það engu máli!! ;) Svo ferðinni heitið upp á Vist, gamangaman. Við reyndar settum bara dótið inn á herbergi og fórum svo. Ég er í 5101 herbergi. Skemmtilegt að labba stigann svona nokkrum sinnum á dag upp á 5. hæð. En það er bara betra :P Við fórum svo bara aðeins í Bónus og svo fór ég aftur upp á Vist. Fór og hitti Hössa minn aðeins og var svo bara eitthvað að ganga frá dótinu með Arndísi. Herbergið orðið bara svaka heimilislegt :D Svo var ég bara eitthvað að hanga með krökkunum. Var eitthvað inni hjá Höskuldi og Rúnari og þar var líka fullt af fólki. Horfði svo bara á Rock Star með þeim :)

Á fimmtudaginn þurftum við að mæta í skólann kl. 9 og þá bara til að hanga þar í korter til tuttugu mín. Vorum bara eitthvað að fá stundartöfluna okkar og eitthvað þannig vesen. Svo vorum við bara að letingjast inni á herberginu okkar, Arndís, Helga og ég. Augnlæknistíminn minn var svo kl.2 og ég þurfti auðvitað að fara þangað. Keypti svo ný gleraugu og ég sver það, ég er hætt að nota gleraugu!! 30.000 kr. Það er bara allt of mikið. Ég var ekki búin að kaupa mér eina einustu bók en samt fannst mér ég vera búin að eyða allt of miklu!! Ég er fátækur námsmaður :P Við vorum svo bara eitthvað að chilla um kvöldið, fór bara snemma að sofa.

Á föstudaginn var bara venjulegur skóladagur, sem saman stendur af 5 tímum með 3 tíma eyðu inni á milli. Fáránlegt. Ef þessi eyða væri ekki og tímarnir 3 fluttir upp þar sem hún er þá væri ég búin í skólanum á föstudögum um 12 leytið!!:frown: En í staðinn er hann búinn kl. hálf 3. Allavega...eftir skóla þá fékk ég bara far með Helgu og Pálma heim. Við vorum þarna þrír farþegar, Höskuldur, Lillý og ég ;) Fórum aðeins í Brynju áður en við lögðum af stað. Klárlega besti ísinn þar :P Ég var svo bara komin heim einhverntíman um 6 leytið og var eiginlega bara lítið að gera þangað til ég fór að sofa.

Í dag er ég voða lítið búin að hafa að gera. Lærði aðeins, fór í Leifsstaði og er svo bara búin að vera að hanga hérna heim. Sofnaði einhverntíman um 6 leytið og svaf í ca klukkutíma, þurfti þá að fara að elda:) Og er svo bara eitthvað að hanga núna :) En ég er hætt í bili.


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 16:07:44 / arnheiður

Bloggpása ;D

Hellúú :) Það er sko pása núna. Er á fullu í undirbúningnum fyrir Akureyri. Fullt af dóti komið niður í töskur og FULLT eftir 8| Hvar á þetta dót allt að komast fyrir?? Ég er búin að taka allt svona dót til, en fötin eru eftir og ég er nú þegar komin með geðveikt mikið dót!!:o Við ætlum að fara á jeppanum á morgun og ég er eiginlega bara farin að kvíða fyrir því að koma þessu öllu fyrir ;) Það reddast samt vonandi :P

Annars er tilhlökkunin alveg að gera útaf við mig. Ég hlakka svo geðveikt mikið til!! Get bara ekki beðið og ég á sennilega eftir aðsofa frekar lítið í nótt út af þessu ;) En það er bara gaman að vera svona spenntur :P

Ég er búin að hafa alveg slatta að gera síðustu daga, þannig að ég hef ekki alveg verið að deyja úr tilhlökkun. Á laugardaginn fór ég snemma um morguninn í Stafnsrétt til að draga nokkrar kindur. Það er sko réttin okkar (fyrir þá sem ekki vita;)). Þessi rétt er reyndar frekar stutt, vorum örugglega búin um svona 11 hálf 12. Þá fór ég nú bara fljótlega í Auðkúlurétt :) Þar var bara stuð sko. Var bara með Hössa að draga eitthvað og svo hitti maður alveg slatta af fólki :) Ég fór svo bara heim með Hössa eftir réttina. Vorum bara eitthvað að chilla þar og fórum svo að sofa um svona hálf 11 eða eitthvað:P
Á sunnudaginn var ég svo bara eitthvað hjá Hössa. Vorum bara inni að chilla ;) Ég þurfti svo að fara um rúmlega 3 og þá fór ég bara heim og var eiginlega ekki að gera neitt þar.

Í gær þurfti ég svo að fara yfir í Leifsstaði með traktórinn og svo vorum við þar í dáldinn tíma að smala kindum og vesenast eitthvað þannig ;) Kom svo bara heim og var eiginlega ekki að gera neitt. Fór svo aftur í Leifsstaði í morgun á traktórnum og fór svo aftur að vesenast eitthvað með kindurnar ;) Er svo bara búin að vera hérna heima að taka mig til og ákvað að taka mér smá bloggpásu :)

Bloggin fara svo vonandi að verða eitthvað betri eftir að ég kem á Akureyri. En ég ætla að segja þetta gott í bili.


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.09.2006 18:24:46 / arnheiður

Újee ;D

Hæhæ :) Ég náði bóklega prófinu...újee ;) Ég var ekkert smá stressuð fyrir það. Lærði gjörsamlega allan þriðjudaginn og fór svo í svaka stresskasti í það á miðvikudaginn kl.11 :D Kom út 25 min. seinna í mjög góðu skapi. Náði því með 2 villum í sitthvorum hlutanum 8) Mjög ánægð með mig og líka með Hauk ;) Hann náði líka og er bara kominn með bílpróf.. til hamingju með það :)
Ég var svo stressuð á þriðjudagskvöldið að ég eyðilagði gleraugun mín :$ Það var kannski ekki útaf því, en það má vel vera. Ég var semsagt að hreinsa glerið á þeim og gerði greinilega aðeins of fast þannig að umgjörðin utan um brotnaði. Svo að núna er glerið eiginlega laust, en ég hef verið ágætlega dugleg við það að líma og svona. Geng núna um með límband á gleraugunum, frekar kjánalegt svona :$ En það verður að hafa það þangað til að ég kemst á Akureyri. Fer þangað á miðvikudaginn og ég ætla bara helst að fara til augnlæknis þá og fá ný gleraugu, ég er orðin frekar pirruð á þessu.

Talandi um Akureyri...það eru 5 dagar :D Hlakka svoo til...eins og ég er sennilega búin að tala um nokkuð oft hérna á síðunni ;) En vá hvað tíminn er samt búinn að vera fljótur að líða. Mér finnst reyndar pínu langt síðan að við kláruðum skólann í vor (eða á að kalla það sumar?:$), en samt ekki svo. Mér finnst t.d. frekar stutt síðan að ég byrjaði að vinna í Blöndu. Þetta sumar var bara geðveikt fljótt að líða!! Mér finnst samt dáldið langt síðan að það var júní...en samt ekki. Æji tíminn er alveg í rugli hjá mér núna ;)

Ég fór í vinnuna eftir prófið á miðvikudaginn (var líka að vinna í gætr). Erla var þá að vinna og það var eiginlega ekkert að gera þann daginn. Ég sat aðallega yfir Prison Break mest allan tímann. Enda frekar erfitt að slíta sig frá því. Þetta eru ekkert smá spennandi þættir. Ég er að verða búin með seríuna og spennan náttla alveg í hámarki, get ekki beðið eftir að sjá hvernig þetta endar, en ég er svona að reyna að draga það svo að ég hafi nú eitthvað að gera þessa 5 daga sem eru eftir þangað til að ég fer í skólann.
Það er reyndar allt á fullu í réttum núna. Var að koma úr Undirfellsrétt núna rétt áðan. Þar var alveg ágætt sko. Fer svo í Stafnsrétt á morgun og kíki svo örugglega aðeins í Auðkúlurétt líka. Við erum búin svo snemma að það er alveg nægur tími :D Hlakka ekkert smá til að fara að hitta alla í Auðkúlurétt ;) Geðveikt margir þar sem ég hef ekki séð síðan ég veit ekki hvenær :D

En jæja, ætli ég fari ekki að segja þetta gott. Ég er alveg að verða komin inn í það að skrifa stutt blogg :P En heyri í ykkur :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 9 desember